Ég get ekki sofið. Ég hef ekki sofið í meira en 9 tíma á þá nokkrar vikur. Það skiptir ekki máli hvað ég reyni. Ég vakna alltaf með hausverk og hálsríg og get ekki legið lengur og fer á fætur og þá verður allt í lagi með líkaman á mér. Ég hélt að ég myndi ná góðum svefni í nótt þar sem skólinn fór í svaðalega göngu í gær og maður var úrvinda eftir hana. Og ég fór síðan í bio seint, fór því ekki að sofa fyrr en um 2 í gær en samt vaknaði ég klukkan 10.30 í morgun, skítþreyttur en gat samt ekki sofið. Þetta er óþolandi....
sunnudagur, október 09, 2005
laugardagur, september 03, 2005
Getting Paid In Dollars
Germanía, Steinarr Brynjarsson, ÓB-banki bíður enn eftir fyrsta deposit hjá þér. 1.september er genginn í garð og ekkert payment borist. Þið sem eruð að klóra ykkur í hausnum, þá er ég orðinn banki Steina. Ég kem til með að geyma peninganna hans sem hann lætur mig þá um hver mánaðarmót, þetta er allt partur af skotheldu HM 2006 plani okkar S.Binna.
Þetta verður nokkuð costy ferð. 25000 flug+ Miðar á nokkra leiki svona 30000 kjéll + gisting?(Spurning hvort við verðum ekki bara á fellerí hvert kvöld og gistum ekki neinsstaðar+Matur und shjitt. Svo ÓB-Banki verður að fá peninganna svo hann geti farið að fjárfesta þeim í Ebay eða eitthvað.
Annars er skólinn byrjaður. Hann er skárri en mér minnti. 2 down 12 to go. Vonandi líður þetta hratt svo maður geti farið að leggja inn umsókn um miða á HM og því bundið enda á endalausar áhyggjur manns að fá ekki miða á stærsta atburð heimsins.
fimmtudagur, júlí 28, 2005
laugardagur, júlí 09, 2005
Dynamite
Ég hreinlega elska Napoleon Dynamite. Keypti mér hana á DVD í gær. Þetta er líklega fyndnasta mynd seinni ára, en þó skiptist fólk algjörlega í tvo hópa með þessa mynd. Ef þú spyrð 100 manns hvað þeim finnst um hana, þá segja 50 að þeir elski hana og 50 að þeir hafi eytt tveim tímum að lífi sínu, en það er reyndar sama fólk og horfir bara á hollywood Colin Farrell, Ashton Kutcher money-making bull myndir.
Persónurnar í þessari mynd eru allir snilld. Þvílíkt meistaraverk. Allt frá Napoleon sjálfum til iþróttagaursins sem deitaði aðal gellunni sem yfirleitt er leikinn af einhverjum glötuðum gaur, sem ef hann væri íslenskur væri í FG og keyrði um að Subaru Impresu með neon og öllu meðfylgjandi. En í þessari mynd var hann snilld.
Don: Hey, Napoleon. What did you do last summer again?
Napoleon Dynamite: I told you! I spent it with my uncle in Alaska hunting wolverines!
Don: Did you shoot any?
Napoleon Dynamite: Yes, like 50 of 'em! They kept trying to attack my cousins, what the heck would you do in a situation like that?
Don: What kind of gun did you use?
Napoleon Dynamite: A freakin' 12-gauge, what do you think?
Napoleon: what are you gonna give her
Pedro: I build her a cake
Kid : hey napoleon what are you doin today
Napoleon: whatever I feel like I wanna do
Smá forsmekkur handa þeim sem eiga eftir að sjá hana. Þið hreinlega verðið að sjá hana og munið ekki sjá eftir monningnum.
miðvikudagur, júní 15, 2005
A new era
Jamm, ég hef nú oft tönnlast á því að leikur aldarinnar sé í kvöld og framvegis. En núna meina ég það virkilega, í kvöld er leikur aldarinnar, fyrsta uppgjör toppliðanna sem ég upplifi á ævinni. Valur-FH er í kvöld, ég er búinn að vera með í maganum í allan dag. Spennan í bland við kvíða við að upplifa vonbrigði í kvöld er að gera mér lífið leitt þessa stundina, ég get ekki hugsað um annað.
Mamma kom inn áðan og sagði "hvað er að sjá þig drengur, þú ert fölur sem kríuskítur", svo ég er að reyna að róa mig niður. Ég er búinn að hlusta á Cheers þema lagið, Where everybody knows your name svo oft í dag að ég er aðeins að róast, enda er þetta lag ekkert nema fegurð og fær mig til að vilja hlaupa nakinn í grænum, iðandi mosanum einhverstaðar langt í burtu þar sem enginn er nema ég og fjöllinn fögur og tignarleg.
Æji, ég ætla að hætta þessu rugli, tveir tímar í leik...............Ég held ég taki bara róandi, þetta er ekki eðlilegt hvað ég er stressaður. En ég hef samt trú á mínum mönnum.
C´mon you Valur
P.S Hjalti, þú lúkkaðir gúd á hjólinu þínu áðan, kósveittur á leið heim úr vinnu með stærstu headphone sem hvítur maður hefur borið, heheh
fimmtudagur, júní 09, 2005
David Beckham bara á Íslandi. Jamm, só segja sumir og ég svosem líka. EN ég fór að pæla áðan, hvað geriru þegar þú kemur til einhvers lands, jú þú tekur ferðabæklinga, og jájá you guessed it, þá eru svona 97% líkur á að ég hafi pakkað þeim ferðabækling sem David Beckham er með á náttborðinu sínu núna. Jamm þetta er megastöff, kannski ekki merkilegasti póstur minn en ef það er eitthvað sem mér hefur verið kennt þá er það að meta hlutina sem maður gerir í lífinu, og þetta er megastöff.
Var reyndar að pæla í dag að skrifa áfram Valur inn í einn bækling, það hefði nú verið megastöff hefði ég gert það fyrir viku og MR.Becks hefði bara fengið bæklingin og séð"Áfram Valur" og sagt jé.
Æjjjj ég er farinn að sofa, er bara að tala tóma tjöru..........................
Lambakjöt.........................
sunnudagur, júní 05, 2005
America, fuck jé
Já ég var í útkeyrslu í vinnunni á föstudag. Þá þurftum við að fara með nokkra bæklinga í Ameríska sendiráðið. Áður en við lögðum að stað sagði lagerstjórinn mér að þegar farið er með sendingar í Amríska sendiráðið þarf að hafa með nafnspjald frá viðtakanda og stranglega bannað er að afhenda lokaðan kassa. Hann þarf að vera galopinn og þegar þú þarft að beina opnum kassanum að öryggisvörðunum áður en þú kemur nálægt þeim. Annars verðuru bara nelgdur niður.
Mér fannst þetta mjög fyndið. En þetta var ekki nóg. Þegar ég kom inn í götuna, Laufásvegur er þaggi. Þá fórum við yfir 2 risastórar hraðahindranir, en kanarnir telja að það sé ekki nóg til að koma í veg fyrir að blóðþyrstir Íslendingar keyri á hraða inn í bygginguna með allar sprengjurnar okkar, heldur eru þeir með risastóra blómapotta, nokkur tonn líklega sem umkringja húsið. 3 öryggisverðir og rimlar fyrir öllu sína hve ofsalega paranoid kanarnir eru. Vá sko, ég held þið þurfið ekkert að hafa svona miklar áhyggjur af horsniffandi Íslendingum í okkar lopapeysum.
En það sem er skemmtilegast við þetta eru öryggisverðirnir. Sem eru svona gaurar sem taka vinnunna sína alveg svakalega alvarlega, okey þeir eru að guarda Ameríska sendiráðið en vá. Þeir eru eins og einhverjir secret service gaurar sem myndu fylgja Bush í gegnum Írak. Maður má ekki setja hendina ofaní vasa og þá fara þeir gersamlega á taugum, þekki þetta af reynslu frá seinasta sumri og svo eru þeir alveg einstaklega fúlir og geta ekki einu sinni sagt takk eða góðan dag, cheer up lads..............
En hérna muniði að leita að einhverju hér til hliðar, ég er í veðmáli við Hallgrím. Hann trúir ekki að þetta fyrirtæki muni actually senda mér ávísun en ef þeir gera það þá gefur hann mér ís og ég vona að þið hjálpið mér því þetta verður gúddí ís.
P.S Sin City er geðveik........
P.P.S Heyrst hefur að Steini og Fatou séu að plotta að sprengja Maltneska sendiráðið.........Sel ekki dýrara en ég keypti það.......................

